„Baugur aldrei sterkari en núna“
Gunnar segir almennt um stöðu Baugs á breskum smásölumarkaði að hún sé sterk. Fyrirtækið sé frekar á þeim buxunum að kaupa fleiri keðjur en að losa sig við eignir.
„Fyrirtæki okkar í Bretlandi hafa heilt yfir gengið mun betur yfir jólin heldur en við sáum á markaðnum í heild sinni. Við erum ánægðir með jólaverslunina og það er alveg ljóst að staða Baugs í Bretlandi hefur aldrei verið sterkari en núna. Við gerum okkur vel grein fyrir því að hægt hefur á neyslunni í Bretlandi, allar sölutölur bera keim af því, en okkar merki hafa gert vel og eru í góðu standi. Okkar stærstu merki eru að skila yfir 500 milljón punda hagnaði á ári og eru lítið skuldsett, “ segir Gunnar en 500 milljón pund gera um 63 milljarða króna á núvirði. Spurður hvaða keðjur standa best nefnir hann Iceland Food, House of Fraser, Hamleys og Booker. Minni verslanakeðjur eigi erfiðara ár að baki þó tölur liggi ekki fyrir. Hann segir að þótt helstu skráðu félög Baugs á markaði hafi verið að lækka verulega í verði að undanförnu þá skapi það mikil kauptækifæri. Að auki sé Baugur að fjárfesta í Bretlandi til lengri tíma.



















