Viðskipti
| AP
| 30.1.2008
| 8:47
Hagnaður BNP Paribas dregst saman um 42%
Hagnaður stærsta banka Frakklands, BNP Paribas, dróst saman um 42% á fjórða ársfjórðungi, samkvæmt því sem fram kemur í afkomuviðvörun frá bankanum. Nam hagnaður bankans 1 milljarði evra, tæpum 96 milljörðum króna, samanborið við 1,7 milljarða evra á sama tímabili 2006. Hagnaður ársins jókst um 7% og nam 7,8 milljörðum evra, tæpum 747 milljörðum króna, á síðasta ári samanborið við 7,3 milljarða evra árið 2006.
BNP Paribas staðfestir ekki í afkomutilkynningu orðróm um að bankinn muni gera yfirtökutilboð í samkeppnisaðilann, Societe Generale, en SocGen á í miklum erfiðleikum eftir að upp komst um fjármálahneyksli innan bankans er verðbréfamiðlari hjá SocGen tapaði 4,9 milljörðum evra á framvirkum samningum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















