Íslensku bankarnir í athugun hjá Moody's
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur tekið til athugunar lánshæfismatseinkunn Glitnis og Landsbankans með mögulega lækkun í huga. Jafnframt er Kaupþing enn til athugunar hjá Moody's með mögulega lækkun í huga. Hins vegar hefur einkunn bankanna þriggja vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga, P-1, verið staðfest, en það er jafnframt hæsta einkunn sem gefin er af Moody's.
Lánshæfiseinkunn allra bankanna þriggja er Aa3 fyrir langtímaskuldbindingar og C fyrir fjárhagslegan styrkleika.
Í tilkynningu frá Moody's kemur fram að ástæða þess að lánshæfiseinkunnirnar eru nú teknar til athugunar sé vegna útlits um versnandi afkomu bankanna á árinu 2008. Gildir það um alla bankana en lánshæfiseinkunn Kaupþings var tekin til athugunar í ágúst á síðasta ári eftir að tilkynnt var um fyrirhuguð kaup bankans á hollenska bankanum NIBC.
Lýsa yfir áhyggjum af viðskiptalíkani íslensku bankana
Fram kemur í tilkynningu að Moody's hafi ákveðnar áhyggjur af viðskiptalíkani íslensku bankanna sem er mjög viðkvæmt fyrir sveiflum á markaði. Módelið byggi á því að stærsti hluti tekna þeirra komi frá fjárfestingabankastarfsemi og fyrirtækjasviði. Vegna þeirra erfiðu aðstæðna sem nú ríki þá geti þetta haft mikil áhrif á afkomu þeirra á yfirstandandi ári. Raunar hafi þetta haft mikil áhrif á uppgjör þeirra á fjórða ársfjórðungs 2007, segir Kimmo Rama, helsti greinandi íslensku bankanna hjá Moody's í skýrslu um íslensku bankana.
Skuldatryggingarálag banka hækkar
Eftir að svissneski bankinn UBS greindi frá því í morgun að tap bankans hafi numið 12,5 milljörðum svissneskra franka, 741 milljarði íslenskra króna á fjórða ársfjórðungi 2007, hefur skuldatryggingarálag banka almennt hækkað í heiminum. Í frétt Børsen kemur meðal annars fram að skuldatryggingarálag á skuldabréfum Kaupþings er nú 549 punktar.



















