Viðskipti
| AP
| 31.1.2008
| 11:19
Hagnaður Shell eykst um 60%
Jeroen van der Veer, forstjóri Shell. STR
Hagnaður Royal Dutch Shell, stærsta olíufélags Evrópu, jókst um 60% á fjórða ársfjórðungi. Nam hagnaðurinn 8,47 milljörðum dala, 552 milljörðum króna, samanborið við 5,28 milljarða dala á sama tímabili í 2006. Er þetta methagnaður hjá Shell í dollurum talið. Tekjur Shell námu 107 milljörðum dala samanborið við 75,5 milljarða dala á fjórða ársfjórðungi 2006.
Hlutabréf Shell lækkuðu um 1,3% í Kauphöllinni í Amsterdam í morgun enda höfðu greiningardeildir gert ráð fyrir enn betri afkomu hjá félaginu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















