Viðskipti
| Morgunblaðið
| 2.2.2008
| 5:30
| Uppfært
7:25
Listinn í Gift tilbúinn í lok mánaðarins
Skilanefnd Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga vonast eftir að í lok þessa mánaðar liggi fyrir hverjir eiga rétt á að lýsa kröfum um hlutafjáreign í fjárfestingarfélaginu Gift, en um mitt síðasta ár var tekin ákvörðun um að slíta félaginu og færa eignirnar yfir í Gift.
Þegar ákvörðun um slitin var tekin var talið að verðmæti eigna félagsins næmi um 30 milljörðum. Verðmæti eignanna hækkaði þegar leið á sumarið, en síðustu mánuðina hefur verðmætið lækkað eins og í öðrum félögum. Gift er meðal stærstu eigenda Kaupþings. Ekki hefur verið tekið saman hversu mikið eignirnar hafa rýrnað.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















