Hlutafjárútboð hjá SocGen
Franski bankinn Societe Generale ætlar að efna til hlutafjárútboðs á næstunni til þess að auka fé banans eftir að hafa tapað tæplega 5 milljörðum evra á viðskiptum verðbréfamiðlarans Jerome Kerviel. Í tilkynningu frá SocGen kemur fram að hagnaður bankans hafi numið um 947 milljónum evra á síðasta ári en ekki liggur fyrir endurskoðað uppgjör fyrir árið 2007. Ekki er von á því á næstunni vegna rannsóknar á viðskiptum Kerviel.
Er þetta mun betri afkoma heldur en forsvarsmenn Societe Generale kynntu í janúar er greint var opinberlega frá vafasömum viðskiptum Kerviel. Þá kom fram að útlit væri að hagnaður bankans á síðasta ári hafi numið 600-800 milljónum evra.
Hins vegar hefur nú komið í ljós að afskriftir vegna undirmálslána eru meiri en áður var talið. Nema afskriftirnar 2,6 milljörðum evra í stað 2,05 milljörðum evra eins og greint var frá í janúar.
Alls á að safna 5,5 milljörðum evra í útboðinu og verður útboðsgengið mun lægra heldur en verð bankans á markaði. Verður útboðsgengið 47,50 evrur á hlut sem er um 40% lægra en lokaverð bankans í Kauphöllinni í París á föstudag. Áskriftartíminn er 21.-29. febrúar næstkomandi.



















