Geir: tveir kostir í boði

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, á Viðskiptaþingi í dag.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, á Viðskiptaþingi í dag. Árvakur/Golli

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir að flestir séu búnir að átta sig á því að einungis tveir kostir séu í stöðunni, að halda íslensku krónunni eða taka upp evru sem jafnframt þýðir inngöngu í Evrópusambandið. Það er einfaldlega ekki kostur að taka einhliða upp evru. Slíkt er ekki trúverðugt og því fylgir margs konar óhagræði og aukakostnaður.

„Eins og margoft hefur komið fram er aðild að Evrópusambandinu ekki á dagskrá núverandi ríkisstjórnar og þar með ekki heldur upptaka evru. Við þurfum því að einbeita okkur að því að koma hér á meira jafnvægi í efnahagslífinu eftir uppsveiflu síðustu ára. Ná verðbólgunni niður og draga úr viðskiptahallanum. Þetta tvennt, ásamt því að halda áfram að treysta og fjölga stoðunum undir okkar atvinnulífi, eru stóru verkefnin framundan," sagði Geir á viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK