Hagnaður af rekstri Norðlenska
Kjötverkun hjá Norðlenska. mbl.is/Skapti
Hagnaður Norðlenska matborðsins ehf. á árinu 2007 nam 505,8 milljónum króna samanborið við 18,7 milljóna króna hagnað árið 2006.
Í árslok 2007 námu eignir félagsins 2183 milljónum króna, bókfært eigið fé var 405 milljónir og hafði hækkað um 37 milljónir milli ára og eiginfjárhlutfall var 19%. Ársvelta Norðlenska á árinu 2007 var 3181 milljón króna.
Norðlenska var stærsti sláturleyfishafi landsins árið 2007, heildarslátrun félagsins á árinu nam 3732 tonnum.
Hjá Norðlenska voru 189 ársstörf á Akureyri, Húsavík, Höfn og í Reykjavík. Á Akureyri er stórgipaslátrun og vinnsla úr þeim afurðum. Á síðasta ári var slátrað um 14.500 svínum á Akureyri og um 3.600 nautgripum. Á Húsavík er dilkaslátrun og vinnsla úr dilkakjöti. Á sl. hausti var slátrað 81.500 dilkum á Húsavík. Á Höfn er dilka- og stórgripaslátrun. Á liðnu hausti var þar slátrað 33.300 dilkum. Í Reykjavík er rekið öflugt sölustarf.
Á árinu 2007 urðu miklar breytingar á eignarhaldi Norðlenska. Búsæld, framleiðslufélag bænda, eignaðist félagið að fullu með kaupum á eignarhlutum KEA, Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga, Akureyrarbæjar og Norðurþings. Heildarfjárfesting Búsældar vegna þessara kaupa nam 568 milljónum króna. Jafnframt var fasteign Norðlenska á Akureyri seld til fasteignafélagsins Miðpunkts.



















