Tap á rekstri Byggðastofnunar
Höfuðstöðvar Byggðastofnunar á Sauðárkróki.
Tap á rekstri Byggðastofnunar nam 179,4 milljónum króna á síðasta ári en árið 2006 var 10,1 milljóna króna hagnður á rekstrinum.
Rekstrartekjur námu 376,3 milljónum og rekstrargjöld 416,4 milljónum. Með framlögum í afskriftarreikning útlána og niðurfærsla hlutafjár voru heildar rekstrargjöld 777,2 milljónir króna. Framlög í afskriftarreikning útlána og niðurfært hlutafé nam 360,9 milljónum króna.
Til þess að styrkja eiginfjárstöðu Byggðastofnunar, samþykkti Alþingi Í lok síðasta árs 1,2 milljarða króna fram framlag til stofnunarinnar.Eigið fé Byggðastofnunar nam rúmum 2 milljörðum eða 16,02% af niðurstöðu efnahagsreiknings í árslok. Eiginfjárhlutfall stofnunarinnar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var 14,15%.



















