Ein af fyrirtækjakeðjum Tchenguiz í skiptameðferð
Laurel Pub Company, eitt af fyrirtækjum kaupsýslumannsins Robert Tchenguiz verður sett í skiptameðferð, að því er kemur fram í breska blaðinu The Times í dag. Um er að ræða fyrirtæki, sem rekur veitingastaði og krár víðsvegar um Bretland. Blaðið segir að Kaupþing og Dresdner Kleinwort, viðskiptabankar Laurel, hafi ekki viljað endurfjármagna skuldir félagsins nema hluti af veitingastöðum þess yrðu seldir.
Laurel Pub Company rekur um 460 veitingastaði og þar af hafa um 100 verið reknir með tapi. Hefur staðan versnað undanfarið vegna lausafjárkreppunnar og reykingabanns, sem tók gildi á Bretlandseyjum á síðasta ári. Blaðið segir að Tchenguiz hafi undanfarið reynt að selja þá staði, sem ekki skiluðu hagnaði en án árangurs og því hafi verið gripið til þess ráðs að setja fyrirtækið í skiptameðferð. Búið er að loka öllum þeim stöðum, sem reknir voru með tapi, nema fimm.
The Times segir, að talið sé að Tchenguiz ætli að kaupa fyrirtækið aftur að undanskildum stöðunum 100. Hins vegar gæti hann fengið samkeppni frá öðrum fjárfestingarfélögum, m.a. Blackstone.
Blaðið segir, að R20, fjárfestingarfélag Tchenguiz, hafi keypt Laurel í nóvember 2004 fyrir 151 milljón punda. Í maí 2005 keypti hann Yates Group fyrir 202 milljónir punda, mánuði síðar bætti hann 98 börum frá SFI Group við og í apríl á síðasta ári keypti hann tapasbarafyrirtækið La Tasca fyrir 123 milljónir punda.
Til stóð að Laurel yrði endurfjármagnað í september á síðasta ári en lausafjárkreppan setti strik í reikninginn. Viðskipti hafa einnig dregist saman á bjórkrám vegna reykingabannsins sem gerir endurfjármögnun enn erfiðari. Alls skuldar félagið um 165 milljónir punda.
Blaðið hefur eftir heimildarmanni, að flestir veitingastaðirnir innan Laurel gangi vel og séu reknir með hagnaði. Aukin áhersla á að selja mat hefur skilað árangri en fyrirtækinu hafi hins vegar blætt mikið vegna nokkurra staða sem gengið hafi afar illa.
The Times segir, að hlutabréf Laurel séu í eigu sjóðs Tchenguiz fjölskyldunnar, Kaupþings, Ian Payne, stjórnarformanns og Paul Symonds, framkvæmdastjóra.



















