Viðskipti
| AFP
| 18.3.2008
| 8:41
Kerviel laus úr haldi
Dómari í París úrskurðaði í dag að fyrrum verðbréfamiðlari hjá Societe Generale bankanum, Jerome Kerviel, sem hefur setið í gæsluvarðhaldi í tengslum við fjársvikamál, yrði látinn laus á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Kerviel er talinn bera ábyrgð á 4,9 milljarða evra tapi SocGen vegna áhættusamra viðskipta sem hann stundaði er hann starfaði hjá bankanum.
Kerviel hefur setið í gæsluvarðhaldi í La Sante fangelsinu í París frá 8. febrúar sl. Lögregla óskaði eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi Kerviel til þess að tryggja það að hann hefði samband við samstarfsmenn sína, ef einhverjir eru. Kerviel heldur því hins vegar fram að hann hafi starfað einn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















