Lehman Brothers næsta fórnarlamb lánsfjárkreppunnar?
Höfuðstöðvar Lehman Brothers í New York. AP
Margir óttast, að bandaríski fjárfestingarbankinn Lehman Brothers kunni að verða næsta fórnarlamb undirmálslánakreppunnar, sem breiðst hefur hratt út um fjármálakerfi heimsins síðasta misserið.
Bandaríski fjárfestingarbankinn Bear Stearns var um helgina seldur til bankans JP Morgan á útsölu en fyrrnefndi bankinn hafði dagana á undan lent í miklum lausafjárvanda þar sem mikið skuldabréfum í hans eigu tengjist svonefndum undirmálslánum á bandarískum fasteignamarkaði og eru þau bréf nær verðlaus.
Lehman Brothers skilar uppgjöri í dag og að því er fram kemur á fréttavef danska fjármálablaðsins Børsenbúa fjárfestar sig undir það versta. Í gær lækkaði gengi bréfa bankans um 20% í viðskiptum í Kauphöllinni á Wall Street. Markaðsvirði bankans hefur lækkað um helming frá því lausafjárkreppan fór að segja til sín á peningamarkaði.
Lehman Brothers er í hópi stóru bankanna á Wall Street en sá minnsti þeirra og var einnig virkastur í viðskiptum með undirmálsskuldabréf. Sérfræðingar telja margir, að Lehman sé ekki nægilega stór til að bandaríski seðlabankinn grípi til björgunaraðgerða líkt og þeirra, sem gripið var til sl. föstudag þegar Bear Stearns fékk neyðarlán.
Skuldatryggingaálag Lehman Brothers er nú um 443 punktar. Álag Bear Stearns var um 800 punktar undir lok síðustu viku en lækkaði í 426 eftir að JP Morgan keypti bankann.



















