Viðskipti
| mbl
| 24.3.2008
| 14:01
Hlutabréf hækka á Wall Street
PETER MORGAN
Hlutabréf hækkuðu á Wall Street í upphafi viðskipta í dag en fjárfestar virðast hafa fyllst bjartsýni við fréttir af því, að fjárfestingarbankinn JP Morgan Chase hækkaði tilboð sitt í fjárfestingarbankann Bear Stearns úr 2 dölum á hlut í 10 dali. JP Morgan tilkynnti einnig nú eftir hádegið, að hann myndi kaupa 39,5% hlut í Bear Stearns af bankanum sjálfum.
Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 100 stig við upphaf viðskipta eða um 0,8%. Nasdaq vísitalan hækkaði um 1,12%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















