Vilhjálmur ósáttur við svör FL Group

Vilhjálmur Bjarnason

Vilhjálmur Bjarnason

Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, er ósáttur við þau svör sem FL Group sendi honum varðandi þær spurningar sem hann bar upp á aðalfundi félagsins sem fram fór 11. mars sl. Hann hefur ekki tekið ákvörðun um næstu skref í málinu. „Ég er ekki ánægður,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið.


Eftirfarandi eru svör stjórnar  FL Group við spurningum Vilhjálms Bjarnasonar:

1. Hve mikið tapaði FL Group á eftirtöldum eignum:
    a. AMR Corporation/American Airlines
    b. FInnair Oyj
    c. Royal Unibrew A/S
    d. Bang & Olufsen A/S
    e. Commerzbank AG
    f. Aktiv Kapital ASA

Svar:
Alls nam bókfært tap FL Group af ofandgreindum félögum á árinu 2007 43.780.948.371 kr. FL Group hefur á síðastliðnum mánuðum selt stærstan hluta eignarhluta sinna í ofangreindum félögum. Ef ekki hefði verið gripið til þeirra aðgerða næmi tap félagsins um það bil 45 milljörðum króna til viðbótar auk vaxtakostnaðar.


2. Hvernig var afkoma óskráðra félaga í eigu FL Group og teljast hlutdeildarfélög?
    a. Refresco Holding B.V
    b. Eikarhald ehf.
    c. Geysir Green Energy ehf.
    d. Northern Travel Holding hf. (Sterling & Iceland Express)
                        i Hvert var kaupverð Sterling og Iceland Express?  
                        ii Hvert er bókfært verð félagsins hjá FL Group í dag?
    e. Highland Group Holding Ltd.

Svar:
Verðmæti tilgreindra félaga í bókum FL Group er fært í samræmi við raunverðmæti þeirra (e. fair value) á grundvelli alþjóðlegra reikningsskilastaðla og vísast þar um til skýringar 21 í ársreikningi félagsins. Afkoma framangreindra félaga er ekki færð samkvæmt hlutdeildaraðferð. Hækkun á raunverðmæti eignarhluta í þessum félögum á síðasta ári að undanskildu Geysi Green Energy nam alls 1,4 milljörðum króna, auk 2,9 milljarða króna vegna Geysis Green Energy sem þegar hafa verið innleystir.

Tilkynnt var opinberlega þann 26.desember 2006 að Northern Travel Holding hefði keypt Sterling á 20 milljarða króna. FL Group getur ekki gefið upp kaupverð Northern Travel Holding á Iceland Express. Með því væri brotinn trúnaður við hluthafa og samningsaðila þess félags. Bókfært verð 34% hlutar FL Group í Northern Travel Holding og hluthafaláns til félagsins um síðustu áramót var u.þ.b. 15,3 milljarðar króna.

3. Hve mikið greiddi FL Group í kostnað vegna athugunar á kaupum á Inspired Gaming Group?

Svar:
Beinn útlagður kostnaður við fyrirhugaða yfirtöku á Inspired Gaming Group á síðasta ári var kr. 791.736.000 eða um 1,6% af 50 milljarða fyrirhuguðu kaupverði hlutarins.

4. Er það rétt að Sigurður Helgason hafi fengið 3000 dollara á dag frá FL Group í dagpeninga þegar hann fór á stjórnarfundi hjá Finnair?

Svar:
Eins og fram kom á aðalfundi félagsins hefur félagið ekki greint frá kjörum einstakra starfsmanna eða þjónustuaðila. FL Group er bundið trúnaði gagnvart Sigurði Helgasyni auk þess sem upplýsingar þessar skipta ekki máli varðandi mat á ársreikningi félagsins. Stjórn FL Group getur þó staðfest að FL Group greiddi kostnað vegna ferða Sigurðar Helgasonar á stjórnarfundi hjá Finnair.

5. Hve há fjárhæð var greidd Jóni Þór Sigurðssyni eða fyrirtæki á hans vegum og fyrir hvaða þjónustu?

Svar:
Eins og fram kom á aðalfundi félagsins hefur félagið ekki greint frá kjörum einstakra starfsmanna eða þjónustuaðila. FL Group er bundið trúnaði gagnvart Jóni Þór Sigurðssyni og fyrirtæki hans auk þess sem upplýsingar þessar skipta ekki máli varðandi mat á ársreikningi félagsins. Stjórn FL Group getur þó staðfest að fyrirtæki í eigu Jóns Þórs Sigurðssonar fékk greiðslur vegna þjónustu sem veitt var af starfsmönnum þess. Um var að ræða akstur, viðvik og margvíslega aðra þjónustu fyrir félagið, meðal annars í tengslum við flutninga á nýjar skrifstofur o.fl.

6. Hvað heitir félag í eigu Hannesar Smárasonar, sem fékk greiðslur frá FL Group fyrir veitta þjónustu?
        a. Hversu há var sú upphæð?
        b. Fyrir hvaða þjónustu fékk félagið greiðslur?

Svar:
Þessi einstaki kostnaðarliður skiptir ekki máli varðandi mat á ársreikningi félagsins. Stjórn félagsins getur þó upplýst að um er að ræða greiðslur vegna afnota FL Group af flugvél í eigu Awair Ltd. Sem óbeint er í eigu Hannesar Smárasonar.

7. Hversu há var skuld stjórnarmannsins Þorsteins M. Jónssonar og Materia Invest við FL Group um áramót?

Svar:
Skuld Materia Invest ehf. við FL Group í árslok 2007 nam 73 milljónum króna eins og fram kom á aðalfundi félagsins og var skuldin greidd í janúar 2008. Þorsteinn M. Jónsson, sem á þriðjungshlut í Materia Invest ehf., var skuldlaus við FL Group hf. um áramót.

8. Hver var kostnaður vegna flugferða starfsmanna og stjórnarmanna FL Group á árinu?

Svar:
Þessi kostnaðarliður skiptir ekki máli varðandi mat á ársreikningi félagsins.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »
Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Innsýn í reksturinn

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir