Hráolíuverð á niðurleið
Verð á hráolíu lækkaði um helgina í kauphöllinni í New York. Verðið lækkaði um 1,2% í gær og í morgun kostað tunna af hráolíu til afhendingar í maí 104,34 Bandaríkjadali. Verðið náði hámarki þann 17. mars síðastliðinn þegar það fór í 111,80 dali tunnan.
Í Morgunkorni Glitnis kemur fram að ástæða
verðlækkunarinnar nú eru vangaveltur um að minnkandi hagvöxtur í
Bandaríkunum muni draga úr eftirspurn. Einnig er talið að mikil hækkun
á olíuverði undanfarið muni orsaka samdrátt í eftirspurn, en verð á
hráolíu í New York hefur hækkað um 9,2% á frá því í upphafi ársins. Á
sama tíma hefur verð á Brent hráolíu hækkað um 11%.
Frá áramótum
hefur verð á bensíni sem keypt er hingað til lands hækkað minna eða um
ríflega 5% í dölum talið. Innkaupaverð á bensíni í íslenskum krónum
hefur hins vegar hækkað um rúmlega 32% enda hefur gengi krónu gagnvart
Bandaríkjadal lækkað um rúmlega 25% frá áramótum.



















