Standard & Poor’s tekur lánshæfi ríkissjóðs til athugunar
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur til athugunar lánshæfiseinkunnir fyrir langtímaskuldbindingar ríkissjóðs með neikvæðum vísbendingum.
Fréttin hefur þegar birst á fréttaveitunni Bloomberg. Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs hjá Standard & Poor's eru A+/A-1 fyrir skuldbindingar í erlendri mynt og AA/A-1+ fyrir skuldbindingar í íslenskum krónum.
Lánshæfiseinkunnir Íbúðalánasjóðs og Landsvirkjunar einnig til athugunar
Jafnframt hefur matsfyrirtækið Standard & Poor's til athugunar lánshæfiseinkunnir Íbúðalánasjóðs og Landsvirkjunar fyrir
langtímaskuldbindingar í erlendri mynt (A+) og íslenskum krónum (AA-) með neikvæðum vísbendingum. Lánshæfiseinkunnir fyrir
skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt (A-1) og íslenskum krónum
(A-1+) voru staðfestar.
Upplýsingar skortir frá stjórnvöldum
Það að lánshæfiseinkunnirnar séu til
athugunar endurspeglar mat Standard & Poor's um skort á upplýsingum
um hvernig íslensk stjórnvöld ætla að takast á við aukin efnahagsleg
viðfangsefni. Þessi viðfangsefni koma að mestu til vegna þrýstings í
tengslum við lánsfjármögnun Íslands í erlendum gjaldmiðli sem gæti
leitt til beins opinbers stuðnings við þrjá stærstu bankana; Glitni
(A-/Watch Neg/A-2), Landsbanka Íslands (hefur ekki lánshæfiseinkunn hjá
S&P), og Kaupþing Banka (hefur ekki lánshæfiseinkunn hjá S&P).
Standard & Poor's stefnir að því að ljúka við athugun á einkunnum ríkissjóðs Íslands og hinna tveggja opinberu aðilanna á næstu tveimur
vikum.



















