Tap Nýsis 2.343 milljónir króna

Tap samstæðu Nýsis nam 2.343 milljónum króna á síðasta ári samanborið við tap upp á 433,1 milljón króna árið 2006. Í tilkynningu kemur fram að tap félagsins skýrist af fjárfestingum í stórum verkefnum sem ekki skapa tekjur fyrr en á árunum 2008-2010. Þar eru stærst uppbygging tónlistar- og ráðstefnuhúss og fleiri bygginga við austurhöfnina í Reykjavík, einkaframkvæmd í 10 skólum í Aberdeen, bygging íbúða fyrir aldraða við Mörkina í Reykjavík, stækkun Egilshallar og kaup á togurum til fiskveiða við Marokkó.

Í árslok eru dótturfélögin Nýsir fasteignir hf. (81,9%), Nýsir Services ehf. (100%), Stofn fjárfestingarfélag ehf. (100%), Nýsir international ehf. (100%), Nýsir UK Limited (100%), Nýsir þróunarfélag ehf. (100%), Mörkin eignarhaldsfélag ehf. (100%), Faenus ehf. (100%), Nysir Mediterranean Limited (100%) og Operon International hf. (100%). Dótturfélög Nýsis fasteigna ehf. sem eru að fullu í eigu félagsins eru: Grípir ehf., Þekkur ehf., Nýtak ehf., Iði ehf., Teknikum ehf., Engidalur ehf., Hafnarslóð ehf., Laugahús ehf., Fasteignafélag Austurbæjar ehf., Gránufélagið ehf., Borgarhöllin ehf. og Egilshöllin ehf. Dótturfélög Stofns fjárfestingarfélags eru Artes (100%), Faxafen (50%), Hraðbraut (50%), , Sjáland (67%), Midi.is (55,5%) , Salus (50%) og Heilsuakademían (60%) og Mostur (100%). Dótturfélag Mosturs er Laxnesbúið (70%). Dótturfélag Nýsis international ehf. er Nysir Danmark ApS. Í eigu Nysir Danmark ApS eru Jehl ApS Tietgens Have (100%) og Jehl ApS Atriumhuset (100%). Í eigu Nysir UK Limited eru NYOP Aberdeen Limited (100%), NYOP Ruthin Limited (100%) og IBSEC (Operon) (69%). Dótturfélög Nýsis þróunarfélags eru Golf ehf. (82,7%) og Viðskiptahöllin (100%). Eru öll ofangreind félög innifalin í samstæðureikningum. Helstu hlutdeildarfélög eru í Eignarhaldsfélaginu Portus ehf. (50%), Situs ehf. (50%), og Fasteignafélaginu Lækjarhlíð ehf (50%).

Félagið hefur tekist á hendur stór verkefni á sviði einkaframkvæmdar, fjárfestinga í fasteignum, fasteignastjórnunar og rekstrarverktöku, bæði innanlands og erlendis. Starfsemi félagsins eflist mjög í Bretlandi og Danmörku á starfsárinu, samkvæmt tilkynningu.

Samið við Landsbankann um aðstoð við sölu eigna

Vegna erfiðrar stöðu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hefur stjórn félagsins gert samning við Landsbanka Íslands um aðstoð við sölu á eignum, öflun nýs hlutafjár og fjárhagslega endurskipulagningu lána til að tryggja framgang þeirra
verkefna sem félagið er með í þróun. Áætluð velta Nýsis hf og dótturfélaga á árinu 2008 mun verða 11-12 milljarðar króna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »
Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Innsýn í reksturinn

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir