Kaldbakur eignast 12,5% í FL Group á genginu 7,28
Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is
Kaldbakur, fjárfestingarfélag í eigu Samherja, eignast 12,5% í FL Group, eða þriðjung hlutar Baugur Group í FL, með 34% hlut í Styrkur Invest, félagi sem stofnað verður um eignarhlut Baugs í FL Group. Helstu hluthafar Baugs munu eiga 37% í Styrkur Invest. Viðskipti með bréfin í FL eru á genginu 7,28.
Eftir skipulagsbreytingar hjá Baugur Group verður öll fjárfesting félagsins í smásölu undir Baugur Group en önnur fjárfesting félagsins í fjölmiðlum og tækni rennur inn í félag sem nefnt hefur verið Stoðir Invest og hlut félagsins í FL Group verður rennt inn í Styrkur Invest.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Baugur Group sendi frá sér seint í gærkvöldi. Þar kemur fram að hér sé um viðskipti upp á um 65 milljarða króna að ræða.
Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugur Group, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að þeirri endurskipulagningu sem hafist hefði í fyrra væri nú að ljúka. Baugur Group rennir sínum eignarhluta í FL Group inn í Styrkur Invest sem verður að 34% í eigu Kaldbaks og 37% í eigu helstu hluthafa Baugs. Gengi á bréfum í FL Group í þessum viðskiptum er að sögn Gunnars Sigurðssonar 7,28.
Gunnar sagði að undirbúningur þessarar endurskipulagningar hefði varað í allnokkurn tíma þar sem forsvarsmenn Baugur Group hefðu talið nauðsynlegt að félagið yrði hreint fjárfestingarfélag í smásölu. Það skipti máli fyrir rekstur félagsins og aðgang að lánsfé erlendis.
Fjárfestingarfélagið Stoðir Invest, sem er í eigu helstu hluthafa Baugs, kaupir hluti Baugs í fjölmiðla- og fjarskiptafélögum og Styrkur Invest, sem er í eigu Kaldbaks ehf., fjárfestingarfélags Samherja og helstu hluthafa Baugs, kaupir hluti Baugs í fjárfestingar- og fjármálafyrirtækjum. Í tilkynningunni kemur fram að Þórdís Sigurðardóttir og Eiríkur S. Jóhannsson muni hætta í framkvæmdastjórn Baugur Group. Þórdís var áður framkvæmdastjóri fjölmiðla- og tæknisviðs Baugs en verður nú forstjóri Stoðir Invest. Eiríkur verður forstjóri Styrkur Invest en hann var áður framkvæmdastjóri fjárfestingarsviðs hjá Baugi. Aðspurður hvenær þessar skipulagsbreytingar kæmu til framkvæmda sagði Gunnar: „Það er verið að vinna í því að það verði á næstu vikum.“
Í hnotskurn
» Félög Baugs verða þrjú: Baugur Group, Styrkur Invest og Stoðir Invest.» Kaldbakur eignast þriðjung þess hlutar sem Baugur Group átti í FL Group á genginu 7,28.
» Forsvarsmenn Baugs telja að aðgengi að lánsfé erlendis verði auðveldara með því að reka hreint fjárfestingarfélag í smásölu.



















