Styrkur og stoð Baugs Group

Baugur Group hefur fært helstu skráðu eignir sínar á Íslandi yfir í tvö systurfélög sem kallast Styrkur Invest og Stoðir Invest. Í fréttatilkynningu frá Baugi vegna breytinganna segir að félagið hafi gert samkomulag um sölu á fjárfestingum sínum í fjölmiðlum, tækni og fjármálum og að umfang þessara viðskipta sé um 65 milljarðar króna, eða 430 milljónir punda. Ekki er þó um eiginlega sölu að ræða því helstu eigendur Styrks og Stoða eru þeir sömu og eiga Baug.

Gaumur á öll félögin

Samkvæmt Þórdísi Sigurðardóttur, nýskipuðum forstjóra Stoða Invest, eru eigendur Stoða fjárfestingarfélagið Gaumur og tengdir aðilar, en Gaumur er líka aðaleigandi Baugs. Eigendur Gaums eru Jón Ásgeir Jóhannesson, faðir hans Jóhannes Jónsson og systir hans Kristín Jóhannesdóttir.

Tengdu aðilarnir eru síðan Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs, og Hagar sem eru í eigu Baugs. Því eru sömu einstaklingarnir að færa eignir úr einu félagi yfir í annað.

Styrkur Invest hét áður BG Capital og var að fullu í eigu Baugs. Sú breyting verður á að hlutafé Styrks var aukið og Kaldbakur, fjárfestingarfélag Samherja, kemur inn í það sem eigandi 34 prósenta hlutar. Að sögn Eiríks S. Jóhannssonar, forstjóra Styrks, er eina eign félagsins 39,05 prósenta hlutur í FL Group.

Fjármagn og skuldir flytjast

Líkt og áður segir var umfang viðskiptanna sagt vera 65 milljarðar króna. Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, segir það í raun vera verðmæti þeirra eigna sem verið sé að færa frá Baugi inn í nýju félögin tvö. Aðspurður hvort fjármagn hafi skipt um hendur segir hann svo vera en að Baugur hafi ekki viljað fara út í það að útskýra þann hluta breytinganna nánar. Hann staðfestir einnig að skuldir hafi færst með hinum færðu eignum inn í Styrk og Stoðir en vildi ekki heldur sundurliða hvers eðlis þær væru. Gunnar segir Baug standa ljómandi vel og að félagið hafi skilað hagnaði á síðasta ári. Hann vill þó ekki gefa upp hver hagnaðurinn var.

Íslensk umsvif dragast saman

Eftir eignatilfærsluna munu umsvif Baugs Group á Íslandi dragast töluvert saman en umsvif eigenda þess félags verða nákvæmlega þau sömu. Fyrir breytinguna voru um 35 prósent af umsvifum Baugs hérlendis en 43 prósent þeirra í Bretlandi þar sem félagið er afar umsvifamikið í smásölufjárfestingum og rekur fjölda matvöru-, tískuvöru-, skartgripa- og sérvöruverslana. Eftir uppskiptinguna munu 70,5 prósent af eignum Baugs vera í Bretlandi en einungis tæp fjórtán prósent á Íslandi.

Óskráð félög sem starfa á íslenskum smásölumarkaði verða þó flest áfram í eigu Baugs. Þau falla flest undir Haga sem reka alls 77 verslanir hér á landi, meðal annars undir merkjum Bónuss (25 verslanir), 10-11 (26 verslanir) og Hagkaupa (10 verslanir). Meðal annarra áberandi verslana í eigu Baugs eru Húsasmiðjan, Blómaval og Útilíf.

Í hnotskurn
Baugur hefur fært fjárfestingar sínar í fjölmiðlum, tækni og fjármálum yfir í tvö systurfélög. Eigendur þeirra eru sömu einstaklingar og eiga í Baugi Group. Heildarumsvif viðskiptanna eru sögð um 65 milljarðar króna.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »
Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Innsýn í reksturinn

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir