Tilfærsla á eignum
„Um er að ræða uppskiptingu Baugs í þrjú félög,“ segir Þórdís Sigurðardóttir sem verður forstjóri hins nýstofnaða Stoðir Invest. Hún var áður framkvæmdastjóri fjölmiðla- og tæknisviðs Baugs. Þórdís segir þó engar breytingar í aðsigi fyrir þau félög sem færast munu inn í Stoðir.
„Þetta eru sömu eignir og ég er að stýra í dag inni í Baugi sem fara inn í Stoðir Invest, sem verður systurfélag Baugs. Það eru sömu eigendur sem eiga það og eignarhlutur Stoða í þessum félögum sem færast til verður sá sami og Baugur á í dag.“
Eiríkur S. Jóhannsson verður forstjóri Styrks Invest, en eign Baugs í FL Group verður færð inn í það félag. Hann var áður framkvæmdastjóri fjárfestingarsviðs Baugs og situr þegar í stjórn FL Group. Hann segir enga ákvörðun hafa verið tekna um breytingar á stefnu félagsins.
„Við skrifum upp á þá stefnu sem FL Group fylgir í dag. Það er að einbeita sér að þessum kjarnaeignum sem eru Glitnir, TM og Landic. Að öðru leyti er engin ástæða til að tjá sig um eitt eða neitt núna.“



















