Viðskipti
| mbl
| 10.4.2008
| 9:53
Erlend umfjöllun um Ísland skaðaði Baug
Jón Ásgeir Jóhannesson. mbl.is/Ómar
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs Group, segir í viðtali við Viðskiptablaðið, að umfjöllun í Bretlandi um íslensk efnahagsmál og bankakerfið hafi verið farin að skaða fyrirtækið og starfsfólk í fyrirtækjum Baugs þar í landi hafi m.a. verið orðið órólegt um hvort það fengi útborgað. Þetta hafi eðlilega haft áhrif á fyrirtækið.
Jón Ásgeir segir í viðtalinu, að endurskipulagning sem kynnt var í vikunni, geri Baugi hægar um vik að takast á við þau fjárfestingarverkefni, sem beðið hafi á borði fyrirtækisins undanfarið. Þetta muni losa um peninga og lánalínur, sem hafi verið bundnar við annað undanfarið og gefa Baugi gott andrými.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















