Viðskipti
| mbl
| 10.4.2008
| 12:04
Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu
Höfuðstöðvar Seðlabanka Evrópu í Frankfurt. AP
Bankastjórn Seðlabanka Evrópu ákvað á fundi sínum í dag að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 4%. Fyrr í dag ákvað Englandsbanki að lækka stýrivexti um 0,25% og eru þeir nú 5%. Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um 0,5% í dag og eru stýrivextir á Íslandi 15,5%.
Skýrist ákvörðun Seðlabanka Evrópu á auknum verðbólguþrýstingi í þeim fimmtán löndum sem eru innan myntbandalags Evrópu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















