Úr 5 milljónum í plús í 5,5 milljónir í mínus
mbl.is/Arnaldur
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is
Seðlabankinn gerir ráð fyrir því að húsnæðisverð lækki um u.þ.b. 30% að raunvirði til ársloka 2010. Til að skoða hvað þetta þýðir í raun skal hér tekið dæmi af íbúðakaupanda, sem keypti nýlega íbúð fyrir 25 milljónir króna og tók íbúðalán að fjárhæð 20 milljónir, þ.e. fyrir 80% af kaupverðinu. Ef verðbólguspá Seðlabankans gengur eftir verður verðbólgan á þessu ári um 9,3%, um 5,9% á næsta ári og um 2,8% á árinu 2010.
Flest íbúðalán eru í íslenskum krónum og verðtryggð, svonefnd jafngreiðslulán. Þau eru þannig að á fyrstu árunum eru vextir og verðbætur af þeim langstærsti hlutinn af árlegum greiðslum lántakandans. Afborgunarþátturinn er þá lítill og því greiðist lánið mjög hægt niður fyrstu árin. Verðbætur af höfuðstólnum leggjast við hann og hækkar höfuðstóllinn því með verðbólgunni, eins og flestir lántakendur þekkja vel.



















