Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs lækkaðar úr A+ í A

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands mbl.is/Ómar

Matsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á erlendum langtímaskuldbindingum í A úr A+ og á langtímaskuldbindingum í íslenskum krónum í AA- frá AA.  Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

Einkunnir fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt A-1 og íslenskum krónum A-1+ voru staðfestar.

T&C matið hefur einnig verið lækkað í AA úr AA+ og eru horfur fyrir langtímaskuldbindingar ríkissjóðs neikvæðar.

Standard & Poor's tilkynnti 1. apríl, að lánshæfiseinkunnir ríkisins, Landsvirkjunar og Íbúðalánasjóðs, hefðu verið teknar til athugunar, einkum vegna skorts á upplýsingum um hvernig íslensk stjórnvöld ætla að takast á við aukin efnahagsleg viðfangsefni. Þau verkefni komi að mestu til vegna þrýstings í tengslum við lánsfjármögnun Íslands í erlendum gjaldmiðli sem gæti leitt til beins opinbers stuðnings við þrjá stærstu bankana,

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK