UBS útskýrir ástæður gríðarlegs taps vegna undirmálslána
Svissneski bankinn UBS segir í skýrslu, sem birt var í dag, að veikburða eftirlitskerfi og launastefna, sem hvatti til áhættusamra samninga, hafi m.a. leitt til þess að bankinn hefur nú þurft að afskrifa jafnvirði 2800 milljarða íslenskra króna, sem tengjast undirmálslánum á bandarískum fasteignamarkaði.
UBS er sá banki, sem farið hefur verst út úr undirmálslánakreppunni. Aðalfundur bankans er í vikunni og hefur hluthöfum nú verið send 50 blaðsíðna skýrsla, úrdráttur lengri skýrslu sem bankinn hefur sent svissneska bankaeftirlitinu. Þar er reynt að skýra hvers vegna UBS hefur þurft að afskrifa yfir 37 milljarða dala á síðustu mánuðum.
UBS sagði, að eftirlitskerfi bankans hefði ekki brugðist við þegar skuldabréfaeign bankans, sem tengdist bandarískum fasteignalánum, óx umtalsvert.
Þá segir bankinn að launakerfi bankans hafi ekki veitt bankanum nægilega vernd til langs tíma. Þannig hafi launakerfið hvatt starfsmenn til þess að gera áhættusama viðskiptasamninga sem almenn gáfu góða ávöxtun. Þannig hafi launauppbót miðast við brúttóveltu þar sem ekki var tekið tillit til gæða eignasafnsins.



















