Vilja selja allt að 35% í Icelandair
mbl.is/GSH
Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is
Forsvarsmenn Samvinnutrygginga ehf. ásamt tengdum hluthöfum í Icelandair Group hf. hafa leitað eftir því við erlend flugfélög að þau kaupi allt að 35% hlut í Icelandair fyrir um 8,5 milljarða króna.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur Glitnir tekið að sér að hafa milligöngu um söluna.
Samvinnutryggingar ehf. eiga þriðjung hlutafjár í Langflugi ehf. sem er stærsti hluthafinn í Icelandair, með 23,8% hlut. Finnur Ingólfsson á 2/3 hluta Langflugs ehf.
Annar stærsti hluthafi Icelandair er Fjárfestingarfélagið Máttur ehf. sem er að 49% hlut í eigu Karls Wernerssonar og fjölskyldu og 49% í eigu Einars Sveinssonar og fjölskyldu. Gunnlaugur Sigmundsson, stjórnarformaður Icelandair, á um 2% í Mætti. Karl Wernersson á einnig félagið Naust ehf. sem á 14,8% í Icelandair.
Buðu SAS að kaupa 30%
Aðrir stórir hlutir í Icelandair eru í eigu Ómars Benediktssonar í félaginu Urði ehf., sem á 5,55%, og Glitnir banki á 4,11% í Icelandair.Samtals eiga því eigendur Langflugs, Urður ehf. og Glitnir banki tæp 35%, en það munu vera þeir hlutir sem Glitnir hefur nú til sölumeðferðar.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hófust þreifingar eftir áramót í hópi ákveðinna hluthafa Icelandair með þeim hætti að SAS var ritað bréf, þar sem kannað var hvort áhugi væri hjá skandinavíska flugfélaginu á að koma inn í Icelandair með hlut á milli 25% og 30%. Engin niðurstaða varð hins vegar af þeim þreifingum.
Það var svo fyrir skömmu að forsvarsmenn Samvinnutrygginga hófu á ný könnun á því, hvort erlent flugfélag eða erlend flugfélög hefðu áhuga á því að kaupa stóran hlut í félaginu með milligöngu Glitnis. Ekki liggur fyrir niðurstaða í þeim könnunum, enn sem komið er, en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafa undirtektir erlendra flugfélaga verið fremur dræmar.



















