Viðskipti
| AP
| 25.4.2008
| 9:36
Kerviel kominn með nýja vinnu
Verðbréfamiðlarinn Jerome Kerviel, sem er ásakaður um að hafa valdið því að franski bankinn Societe Generale tapaði tæplega 5 milljörðum evra, er kominn með nýja vinnu.
Samkvæmt upplýsingum frá talsmanni Kerviel hóf hann störf hjá tölvuráðgjafarfyrirtæki fyrir utan París fyrir viku síðan.
Kerviel á yfir höfði sér ákæru fyrir fjársvik og að hafa leynt upplýsingum er hann starfaði fyrir SocGen.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















