Hagnaður Shell eykst um 25%
Jeroen van der Veer, forstjóri Royal Dutch Shell. Reuters
Hagnaður hollenska olíufélagsins Royal Dutch Shell jókst um 25% á fyrsta ársfjórðungi en aukinn skýrist einkum af háu olíuverði. Nam hagnaður félagsins 9,08 milljörðum dala og hefur aldrei verið meiri. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður Shell 7,28 milljörðum dala.
Í tilkynningu frá Shell, sem er stærsta olíufélag Evrópu, kemur fram að meðalverð á hráolíu hafi hækkað um 66% frá fyrsta ársfjórðungi í fyrra og var rúmir 90 dalir tunnan.
Sölutekjur Shell jukust um 55% og voru 114 milljarðar dala.
Forstjóri Shell, Jeroen van der Veer, segir í tilkynningu það sé bæði góð afkoma af rekstri sem og verðhækkanir á olíu og bensíni sem skýri bætta afkomu.
Hlutabréf Shell hækkuðu um 3,3% í morgunsárið í Kauphöllinni í Amsterdam.



















