Hluthafafundur í FL Group haldinn 9. maí
mbl.is
Stjórn FL Group hefur samþykkt að boða til hluthafafundar 9. maí þar sem og leggja fyrir hluthafa tillögu um skráningu félagsins úr kauphöll OMX Nordic Exchange á Íslandi.
Í tilkynningu, sem send var í nótt, segir að stjórnin telji að afskráning félagsins þjóni hagsmunum félagsins og hluthöfum þess best og veita stjórnendum færi á að leggja frekari áherslu á langtímamarkmið. Síðustu mánuði hafi farið fram gagnger endurskoðun á fjárfestingastefnu og rekstri FL Group en félagið leggi nú áherslu á stöðugar langtímafjárfestingar og fjárfestingar í óskráðum félögum. Afskráning muni veita framkvæmdastjórn félagsins sveigjanleika til að horfa til lengri tíma í uppbyggingu félagsins og minnka kostnað og umsvif sem fylgi því að vera skráð félag.
Fram kemur í tilkynningunni, að FL Group muni að fengnu samþykki hluthafafundar mun FL Group gera hluthöfum tilboð um að kaupa hluti þeirra í FL Group og greiða fyrir þá með hlutum í Glitni. Um 83% hluthafa félagins hafi þegar afsalað sér rétti til tilboðsins og verði því áfram hluthafar í FL Group. Afskráningarferli
Samþykki 2/3 hluthafa þarf til þess að afskráningarferlið geti hafist. Að fengnu samþykki hluthafafundar þann 9. maí mun hluthöfum standa til boða að halda hlutum sínum í FL Group, sem verður óskráð félag, eða selja hluti sína og fá greitt fyrir með hlutum í Glitni. Kaupverð hluta í FL Group í tilboði til hluthafa verður 6,68 á hlut sem var meðalgengi FL Group í aprílmánuði 2008 og gengi á hlutum í Glitni verður 17,05 á hlut sem var lokagengi Glitnis þann 30. apríl 2008. Skiptihlutfallið í tilboði til hluthafa verður því 0,3918 hlutir í Glitni banka fyrir hvern hlut í FL Group.
FL Group hefur gert samkomulag við Jötunn Holding ehf. um rétt FL Group til kaupa á hlutum Jötuns í Glitni sem nota skal í viðskiptunum. Þessi viðskipti hafa því engin áhrif á 31,97% eignarhlut FL Group í Glitni eða stöðu Glitnis sem einni af kjarnafjárfestingum FL Group, að því er segir í tilkynningunni.
Meðal stærstu fjárfestinga FL Group eru 32% hlutur í Glitni banka, 99%hlutur í Tryggingamiðstöðinni og 39,8% hlutur í Landic Property.



















