Nyhedsavisen fær nýtt rekstarfé
Brynjar Gauti
Eigendur útgáfufélags Nyhedsasvisen í Danmörku hafa lagt blaðinu til 117 milljónir danskra króna í rekstrafé, jafnvirði rúmlega 1,8 milljarða íslenskra króna. Blaðið hefur komið út í Danmörku í eitt og hálft ár og fullyrða danskir fjölmiðlar að tap á rekstrinum nemi um 600 milljónum danskra króna, jafnvirði 9,4 milljarða íslenskra króna.
Morten Lund, sem á rúmlega helming í Dagsbrun Media, staðfestir við viðskiptavef Berlingske Tidende í dag, að hann sjálfur leggi fram meira en helming fjárins. Stoðir Invest, sem eru í eigu helstu hluthafa Baugs, eiga einnig hlut í félaginu.
Fram kom í dag, að Hermann Haraldsson, framkvæmdastjóri danska knattspyrnufélagsins Brøndby, hefur tekið sæti í stjórn Dagsbrun Media, eiganda 365 Media Scandinavia, sem gefur blaðið út. Haft er eftir honum, að vandamál við dreifingu blaðsins og mikil samkeppni frá öðrum fríblöðum hafi verið ástæðan fyrir því hve rekstur blaðsins gekk illa fyrst um sinn.
„En nú er Nyhedsavisen reiðubúið fyrir næstu lotu. Það er mikil þróun á dagblaðamarkaðnum nú og það er ljóst að það er rúm fyrir blað á borð við Nyhedsavisen þar," segir Hermenn við Berlingske.



















