Viðskipti
| AP
| 7.5.2008
| 9:44
Hagnaður Total eykst um 18%
Hagnaður franska olíufélagsins Total jókst um 18% á fyrsta ársfjórðungi. Nam hagnaður Total, sem er fjórða stærsta olíufélag heims, 3,6 milljörðum evra á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 3,05 milljörðum evra á sama tímabili í fyrra.
Í tilkynningu frá Total kemur fram að aukinn hagnaður skýrist einkum af hækkun á olíuverði í heiminum.
Hlutabréf Total lækkuðu um 1,1% í Kauphöllinni í París í morgun. Total er stærsta fyrirtækið í Frakklandi miðað við markaðsvirði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















