0,6% samdráttur í bílainnflutningi
mbl.is/Árni Sæberg
Fyrstu 130 daga ársins 2008 hafa 8.513 ökutæki verið nýskráð miðað við 8.563 ökutæki eftir jafn marga skráningardaga á síðasta ári. Þetta er 0,6 % fækkun nýskráðra ökutækja milli ára.
Þess má geta að fyrstu 53 daga ársins hafði nýskráning ökutækja aukist um 46,8% miðað við sama tímabil í fyrra og má því sjá að mikill viðsnúningur hefur átt sér stað hvað þetta varðar, að því er segir í tilkynningu frá Umferðarstofu.
Eigendaskipti ökutækja eru færri það sem af er árinu en á sama tímabili í fyrra. Skráð eigendaskipti fyrstu 130 daga ársins voru 32.892 en voru 35.189 á sama tímabili í fyrra. Þetta þýðir að það hefur orðið 6,5% samdráttur í eigendaskiptum miðað við sama tímabil í fyrra en fyrstu 53 daga ársins var 2,6 % aukning í eigendaskiptum miðað við sama tíma í fyrra.
|
|
Nánar um innflutning á bifreiðum |



















