Viðskipti
| Morgunblaðið
| 13.5.2008
| 5:30
| Uppfært
8:13
Aukin landsáhætta bankakerfisins
Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað landsáhættueinkunn íslenska bankakerfisins (e. Banking Industry Country Risk Assessment) úr hópi 4 í hóp 5. Í fréttatilkynningu fyrirtækisins segir að ástæður lækkunarinnar séu umtalsferð aukning í skuldsetningu einkageirans hér á landi og það hve íslensku bankarnir séu í auknum mæli háðir utanaðkomandi fjármagni. Telur S&P að þessi þróun geri það að verkum að íslenska bankakerfið sé viðkvæmt fyrir ástandi því sem nú ríki á alþjóðlegum lánamörkuðum. Þá muni yfirvofandi fjármálakreppa þrýsta eignasöfnum bankanna niður. Smæð íslenska hagkerfisins þýði að sveiflur verði miklar og eftir mikinn vöxt býst S&P við því að Ísland stefni nú í langt samdráttartímabil vegna minnkandi einkaneyslu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















