Glitnir gefur út skuldabréf fyrir 109 milljarða króna í Noregi
Glitnir Bank ASA í Noregi lauk í dag útgáfu sérvarinna skuldabréfa að upphæð 7 milljarðar norskra króna, 109 milljarðar íslenskra króna. Það er BN Boligkreditt AS, dótturfélag Glitnis, sem er útgefandi skuldabréfanna. Þar með er öll fjármögnun tryggð fyrir starfsemi Glitnis í Noregi fyrir árið 2008 og hluta af fjármögnun ársins 2009 og síðar. Útgáfan var seld til norskra fagfjárfesta.
Í tilkynningu kemur fram að skuldabréfin sem um ræðir eru til 1-7 ára á á NIBOR-vöxtum auk álags upp á 0,25-0,55%. „Ég er mjög ánægður með að Glitnir Bank ASA hafi tryggt alla fjármögnun sína fyrir árið 2008 með sérvarinni skuldabréfaútgáfu", segir Morten Bjørnsen, framkvæmdastjóri Glitnis á Norðurlöndunum, í tilkynningu.
„Ég er einnig ánægður með hagstætt verð á útgáfunni og hversu vel norskir fjárfestar tóku henni", segir Lárus Welding forstjóri Glitnis, í tilkynningu.



















