Skiptasamningar gilda út árið

Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, á blaðamannafundi í Seðlabankanum í dag þar …
Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, á blaðamannafundi í Seðlabankanum í dag þar sem gjaldeyrisskiptasamningarnir voru kynntir.

Samkvæmt gjaldeyrisskiptasamningunum, sem Seðlabankinn hefur gert við seðlabanka Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar, getur Seðlabankinn  keypt allt að 500 milljónum evra af hverjum banka fyrir íslenskar krónur á markaðsgengi hverju sinni og þarf síðan að kaupa krónurnar aftur mánuði síðar á sama gengi þannig að áhrifin á gengi krónunnar verða engin.  

Samningarnir gilda út þetta ár en hægt er framlengja þá. Einnig er hægt að framlengja „skilafrestinn" nýti Seðlabankinn sér að kaupa evrur fyrir krónur. 

Samningarnir hafa haft jákvæð áhrif á íslenska fjármálamarkaði það sem af er í dag. Gengi krónunnar hefur m.a. hækkað um 4,4% og Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur hækkað um 1,74%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK