Kjör forstjóra Glitnis í samræmi við það sem tíðkaðist

Lárus Welding forstjóri Glitnis
Lárus Welding forstjóri Glitnis mbl.is/ÞÖK

Þau kjör sem Lárusi Welding voru boðin er hann var ráðinn forstjóri Glitnis munu hafa verið í samræmi við það sem tíðkaðist við gerð sambærilegra samninga hjá fjármálafyrirtækjum á þessum tíma. Þetta kemur fram í svari stjórnarformanns Glitnis, Þorsteins Más Baldvinssonar, til Vilhjálms Bjarnasonar, hluthafa í Glitni.

Á aðalfundi Glitnis þann 20. febrúar sl. spurði Vilhjálmur m.a. um hvaða ástæður lágu til þess að gerður var kaupréttarsamningur við forstjóra bankans fyrir 150 milljónum hluta á genginu 26,6, samtals að fjárhæð 3.990.000.000, og hver er áætlaður kostnaður Glitnis banka af þessum samningi?

Unnið að því að fella kauprétti niður

Í svari Þorsteins við spurningum Vilhjálms um kaupréttarsamninga forstjóra og lykilsstarfsmanna kemur fram að unnið er að því um þessar mundir, í samstarfi við lykilstjórnendur, að breyta núverandi fyrirkomulagi og fella niður þá kauprétti sem nú eru í gildi.  Tilgangurinn með breytingunum verður fyrst og fremst að koma á nýju fyrirkomulagi þar sem hagur hluthafa og starfsmanna fer betur saman en samkvæmt því fyrirkomulagi sem nú er við lýði. 

Vilhjálmur Bjarnason
Vilhjálmur Bjarnason
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK