Viðskipti
| Morgunblaðið
| 23.5.2008
| 5:30
| Uppfært
6:42
FME vísar máli til lögreglu
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur vísað til ríkislögreglustjóra máli vegna meints brots tveggja starfsmanna eins fjármálafyrirtækis á 117. grein laga um verðbréfaviðskipti. Sú grein fjallar um markaðsmisnotkun og er um að ræða mál er varðar a-lið 1. töluliðar 1. málsgreinar laganna. Í því segir að með markaðsmisnotkun sé átt við viðskipti eða tilboð sem „gefa eða eru líkleg til að gefa framboð, eftirspurn eða verð fjármálagerninga ranglega eða misvísandi til kynna.“ Markaðsmisnotkun er sem kunnugt er óheimil.
Í tilkynningu frá FME segir í að í tilvikinu sem um ræðir hafi átt sér stað „viðskipti eða tilboð um viðskipti með tiltekinn skuldabréfaflokk rétt fyrir lokun sex viðskiptadaga sem véku talsvert frá fyrirliggjandi kauptilboðum sömu viðskiptadaga.“
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins störfuðu mennirnir hjá Kaupþingi og hefur þeim verið sagt upp störfum.
Hvort ákæra verður gefin út er embættis ríkislögreglustjóra að ákveða.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















