Verk Kerviel dregin fram í dagsljósið
Birtar verða tvær skýrslur í dag um málefni franska bankans Societe Generale. Í þeim verður farið yfir það hvað fór úrskeiðis er verðbréfamiðlari bankans tapaði tæpum fimm milljörðum evra fyrir hönd bankans.
Önnur skýrslan - innanhússkýrsla, sem byggir á vinnu þriggja manna nefndar utanaðkomandi aðila, verður gerð opinber eftir lokun markaða á meginlandi Evrópu í dag. Hin skýrslan, sem PriceWaterhouseCoopers hefur unnið, verður einnig gerð opinber eftir að viðskiptum lýkur í Kauphöllinni í París í dag.
Samkvæmt upplýsingum AP fréttastofunnar kemur m.a. fram í fyrri skýrslunni að SocGen hafi brugðist rannsóknarskyldu sinni þar sem bankinn hafi ekki látið rannsaka 75 kvartanir vegna starfa verðbréfamiðlararns Jerome Kerviel. Þar kemur einnig fram að Kerviel hafi starfað einn.
Societe Generale greindi frá því fyrr árinu að Kerviel hafi byrjað að beita brögðum í starfi sínu árið 2005 og nemur tap bankans vegna aðgerða hans tæpum fimm milljörðum evra.



















