Telja gjaldeyrisskiptasamning nægilega tryggan
Fjármálaráðherra Noregs segir, að norski seðlabankinn telji að gjaldeyrisskiptasamningur, sem gerður var við íslenska seðlabankann, sé tryggður með viðunandi hætti. Fjármálaráðuneytið hefur staðfest samninginn fyrir hönd Noregskonungs.
Norski þingmaðurinn Gjermund Hagesæter lagði fram fyrirspurn í Stórþinginu um samninginn. Vildi hann vita hvaða skilyrði norski seðlabankinn hefði sett og hvaða líkur væru á fjárhagslegu tapi af völdum samningsins. Þá vildi þingmaðurinn vita hvort samningurinn byggði á pólitískum forsendum eða hvort um væri að ræða samning á viðskiptagrundvelli.
Í svari Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra, segir að samningurinn og samskonar samningar, sem seðlabankar Svíþjóðar og Danmerkur gerðu við þann íslenska, hafi það að markmiði að styðja íslensk stjórnvöld í viðleitni sinni við að koma á efnahagslegum stöðugleika á Íslandi.
Samningstextinn sé ekki opinber en samningskjörin byggist á þeim skilmálum sem gilda á markaði. Halvorsen segir, að í samningnum við aðra seðlabanka sé gengið út frá því að tryggingar séu nægar. Komi til lánafyrirgreiðslu samkvæmt samningnum séu þau tryggð í íslenskum krónum.
Þá segir Halvorsen, að samkvæmt lögum um seðlabanka getir Noregsbanki gert samninga um gjaldeyrisskipti við erlenda seðlabanka ef nægar tryggingar séu fyrir hendi.



















