Viðskipti
| mbl
| 30.5.2008
| 10:02
Hagnaður Haga 527 milljónir króna
Sverrir Vilhelmsson
Eiginfjárhlutfall 31,5%
Heildareignir samstæðunnar námu 27.995 millj. kr. í lok reikningsársins en námu 23.616 millj. kr. árið áður. Eigið fé félagsins nam 8.808 millj. kr. í lok reikningsársins en nam 6.538 millj. kr árið áður. Eiginfjárhlutfall félagsins var 31,5% í lok reikningsársins.
Fyrirtæki Haga eru eftirfarandi: Bónus, Hagkaup, 10-11, Debenhams, Ferskar kjötvörur, Zara, Aðföng, Hýsing, Útilíf, Res, Íshöfn og Bananar. Hlutdeildarfélög eru: Max og SMS p/f Stöðugildi hjá félaginu í lok reikningsársins voru 1.627 talsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















