Viðskipti
| mbl
| 3.6.2008
| 14:05
Fá ekki að eignast virkan eignarhlut í Icebank
Fjármálaeftirlitið hefur synjað umsókn Sparisjóðs Mýrasýslu um að eignast virkan eignarhlut í Icebank. Sparisjóður Mýrasýslu hafði undirritað samning við Byr, Spron og Netbankann um kaup á 3% eignarhlut í Icebank en við kaupin fór eignarhlutur yfir 9,99 prósent. Var samningurinn skilyrtur því að leyfi fengist hjá FME fyrir því að SPM fengi heimild til að fara með virkan eignarhlut í Icebank.
FME hafnaði umsókninni á þeim forsendum að það hefði of mikil áhrif á eiginfjárhlutfall sjóðsins að eignast umræddan hlut í Icebank ásamt því að með breyttri stefnu Icebank væri hætta á hagsmunaárekstrum meiri en áður.
Búið var að færa tap vegna samningsins í áramótauppgjör Sparisjóðs Mýrasýslu en þar sem kaupin munu ekki eiga sér stað er ljóst að niðurstaða FME mun hafa jákvæð áhrif á rekstur sjóðsins á þessu ári, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















