Dregur úr viðskiptahalla
mbl.is
Viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 56,7 milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins eða 17% af vergri landsframleiðslu, sem er talsvert lægra en á síðasta fjórðungi þegar viðskiptahalli var var 91 milljarður króna. Á fyrsta fjórðungi síðasta árs var viðskiptahallinn 28 milljarðar króna.
Seðlabankinn segir, að talsvert minni halli þáttatekna og á þjónustujöfnuði skýri þessa breytingu milli fjórðunga að mestu en aukinn halli af vöruviðskiptum vegi nokkuð á móti. Ávöxtun erlends hlutafjár í eigu Íslendinga valdi mestu um að jöfnuður þáttatekna batnaði á milli fjórðunga.
Nokkur hækkun varð einnig á gjaldahlið þáttateknanna sem skýrist að mestu leyti af endurfjárfestum hagnaði erlendra aðila á Íslandi. Lækkun á gengi krónunnar á fyrsta ársfjórðungi hafi veruleg áhrif á flesta liði í uppgjöri greiðslujafnaðarins.
Hreint fjárinnstreymi nam 135,3 milljörðum á tímabilinu. Bein fjárfesting innlendra aðila erlendis jókst um 36 millhjarða en á síðasta fjórðungi 2007 dróst hún saman um 275 milljarða. Bein fjárfesting erlendra aðila á Íslandi dróst saman og sama máli gegndi um fjárfestingu þeirra í innlendum markaðsskuldabréfum.
Hrein staða við útlönd var neikvæð um 2211 milljarða í lok fyrsta ársfjórðungs og versnaði um 628 milljarða á ársfjórðungnum. Segir Seðlabankinn, að þessi þróun stafi einkum af veikingu gengis krónunnar, þ.e. hækkun á verði erlendra gjaldmiðla um 29,6% samkvæmt gengisskráningarvísitölu, sem endurspeglist í samsvarandi hækkun stöðutalna um erlendar eignir og skuldir. Einstakar myntir, t.a.m. evra, hækkuðu þó talsvert meira eða um tæplega 33%.
Erlendar eignir námu 7758 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 9970 milljörðum.



















