Atvinnuleysi mældist 1% í maí
mbl.is
Skráð atvinnuleysi í maí var 1% og voru þá að jafnaði 1739 manns á atvinnuleysisskrá, sem eru 22 fleiri en í apríl sl. Atvinnuleysishlutfallið var óbreytt frá því í apríl en í maí í fyrra var atvinnuleysið 1,1%. Vinnumálastofnun býst við auknu atvinnuleysi í júní og að það verði á bilinu 1-1,3%. Samkvæmt tölum á vef stofnunarinnar voru 2223 skráðir atvinnulausir í dag.
Að sögn Vinnumálastofnunar er atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 0,8% og 1,4% á landsbyggðinni eða það sama og í apríl á báðum svæðum. Atvinnuleysi meðal karla minnkar milli mánaða, mælist nú 0,8% en var 0,9% í apríl og er það einkum á landsbyggðinni sem atvinnuleysið minnkar meðal karla. Atvinnuleysi kvenna var 1,3% líkt og í apríl, en jókst þó töluvert meðal kvenna á höfuðborgarsvæðinu.
Þeim sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði fækkaði og voru 506 í lok maí en 538 í lok apríl. Þá var 251 einstaklingur atvinnulaus í meira en eitt ár í lok maí og hefur þeim farið lítið eitt fækkandi síðustu mánuði.
Nýskráningar ríkisborgara frá nýjum ríkjum ESB voru 382 í maí sem er lítið eitt meira en í apríl þegar nýskráningar voru 353. Þetta eru þó mun færri nýskráningar en í maí í fyrra þegar þær voru nærri 700. Gefin voru út 38 ný atvinnuleyfi í maí.
Vinnumálastofnun segir, að oft minnki atvinnuleysið milli maí og júní. Í fyrra minnkaði atvinnuleysið um 7% milli þessara mánaða og var þá 1% í júní og 1,1% í maí. Atvinnulausum í lok maí hafi þó fjölgað frá lokum apríl eða um 115, og um 10 frá sama tíma árið 2007. Þegar allt sé talið sé því líklegt að atvinnuleysið í júní 2008 muni aukast og verða á bilinu 1%-1,3%.
Skýrsla um atvinnuástand í maí 2008



















