Eimskip afskrifar eignarhlut sinn í Innovate

Eimskip stækka

Eimskip mbl.is/Frikki

Eimskipafélag Íslands hefur afskrifað eignarhlut í dótturfélagi sínu, Innovate Holding, í Bretlandi. Bókfært virði eignarhluts er 74,1 milljón evra, rúmlega 8,8 milljarða króna, sem afskrifaður er að fullu á öðrum ársfjórðungi. Unnið er að sölu eigna Innovate í samstarfi við ráðgjafa í Bretlandi.

Í tilkynningu kemur fram að breytingar á starfsemi Innovate og væntanleg eignasala, mun ekki hafa nein áhrif á starfsemi Eimskips á öðrum mörkuðum.

Þá mun stjórn Eimskips láta framkvæma ítarlega skoðun á því ferli sem viðhaft var við kaupin á Innovate. Fyrrum eigendur Innovate þeir Stephen Savage, Stephen Dargavel og Peter Osborne hafa allir látið af störfum og hætt í framkvæmdastjórn Eimskips.

Innovate sérhæfir sig í hitastýrðum flutningum og geymslum í Bretlandi og starfrækir m.a. um 25 vörugeymslur á 11 stöðum. Eimskip fjárfesti í Innovate á árunum 2006-2007 og á nú 100% eignarhlut í félaginu.

Ekki frekari fjármunir settir í Innovate

Segir í tilkynningu frá Eimskip að markaðsaðstæður í Bretlandi hafa verið erfiðar undanfarna mánuði og nýting vöruhúsa og flutningakerfa verri en búist hafði verið við. Samhliða uppbyggingu Innovate gerði félagið langtímaleigusamninga vegna vöruhúsa og flutningakerfis, en forsendur um nýtingu þeirra hafa ekki gengið eftir. Þá hefur fjármagns- og leigukostnaður félagsins í hlutfalli af tekjum einnig stóraukist og taprekstur gert það að verkum að félagið er of veikburða til að halda áfram starfsemi.

Stjórn Eimskips hefur ákveðið að leggja ekki frekara fjármagn inn í rekstur Innovate, m.a. í ljósi þess að umtalsvert fjármagn þarf til að tryggja áframhaldandi rekstur félagsins og vegna áframhaldandi samdráttar á breska markaðnum.

Eimskip hefur á undanförnum vikum unnið með ráðgjafafyrirtæki í Bretlandi að sölu eigna Innovate.

Tekjur Eimskip minni í ár en spáð var

Á árinu 2008 var búist við að tekjur Innovate næmu um 300 milljónum evra, en þau markmið hafa ekki gengið eftir. Með afskrift á eignarhlut í Innovate og sölu þeirra eigna, eru fjárhagsleg markmið samstæðunnar því endurskoðuð fyrir árið 2008.

Á sama tíma verður rekstraráætlun félagsins endurskoðuð í ljósi breyttra markaðsaðstæðna. Búist er við að heildartekjur Eimskips á árinu 2008 verði 1,4 milljarðar evra (áður 1,9 milljarðar evra). Lækkun frá fyrri tekjuáætlun skýrist af Innovate (300 milljónir evra) og vegna lækkunar á flutningatekjum og gengisáhrifa (200 milljónir evra).

Reiknað er með að framlegðarhlutfall verði um 11,5% (áður 9,5%). Hærra framlegðarhlutfall skýrist að mestu leiti af því að hætt hefur verið við fyrirhugaða eignasölu í Bandaríkjunum og Kanada, sem mun endurspeglast í hærri framlegð en á móti hærri fjármagnskostnaði.

„Áhrif á eiginfjárstöðu Eimskips og endurfjármögnun: Bókfært virði Innovate í efnahagsreikningi Eimskips var 74,1 milljónir evra. Í ljósi bágrar fjárhagsstöðu Innovate, þar sem unnið er að sölumeðferð allra eigna félagsins, mun Eimskip gjaldfæra bókfært virði eignarhlutarins að fullu á öðrum ársfjórðungi (1. febrúar - 30. apríl). Umrædd afskrift eignarhlutarins í Innovate, er óháð væntanlegri sölu eigna Innovate.

Eiginfjárstaða Eimskips mun veikjast við afskrift eignahlutarins í Innovate, en stjórn félagsins skoðar nú ýmsa valkosti sem munu styrkja eiginfjárhlutfall félagsins. Hagræðing í rekstri Eimskips Í ljósi fyrirsjáanlegs samdráttar í flutningum mun félagið á næstu mánuðum leita leiða til að hagræða í rekstri og aðlaga félagið að breyttum markaðsaðstæðum," samvkæmt tilkynningu.

Hætt við sölu eigna Versacold Atlas

Stjórn Eimskips metur valkosti sem tengjast rekstri Versacold Atlas Versacold Atlas er stærsta félag sinnar tegundar í heiminum og starfrækir m.a. um 120 kæli- og frystigeymslur í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Argentínu, Nýja Sjálandi og Asíu.

Rekstur félagsins hefur gengið vel og góður árangur náðst í samþættingu Versacold og Atlas frá sameiningu þeirra árið 2007, og áfram er búist við góðum rekstrarárangri þeirra, að því er segir í tilkynningu.

Með áframhaldandi eignarhlut Eimskips í Versacold Atlas verður samvinna félaganna tryggð til framtíðar. Í tengslum við kaup Eimskips á kæli- og frystigeymslufyrirtækjunum Versacold og Atlas í Bandaríkjunum og Kanada á árinu 2007, var ákveðið að vinna að sölu á hluta af eignum félaganna, með endurleigu.

Frá kaupum hafa verið seldar eignir að verðmæti um 462 milljónir evra (690 milljónir kanadískra dala), sem voru endurleigðar. Ný stjórn félagsins hefur ákveðið að hverfa frá frekari sölu eigna og meta aðra kosti, ss. að skoða möguleika þess að skrá Versacold og Atlas á hlutabréfamarkað í Kanada, með það að markmiði að lækka verulega skuldastöðu Eimskips og gera raunveruleg verðmæti Versacold Atlas sýnilegri.

mbl.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Innsýn í reksturinn

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Yfirmaður öryggismála ákærður fyrir fjársvik

Lloyds Banking Group
25.5. Fyrrum yfirmaður öryggismála hjá breska bankanum Lloyds Banking Group hefur verið ákærður fyrir fjársvik fyrir 2,5 milljón punda, 507 milljónir króna. Meira »

Gæti dregið mikið úr hagvexti

25.5. Fari allt á versta veg á evrusvæðinu með uppbroti myntbandalagsins og viðvarandi efnahagslægð í Evrópu á komandi árum mun slíkt óhjákvæmilega hafa mjög skaðleg áhrif á útflutningsatvinnugreinar Íslands. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Sparnaður eykst ekki þrátt fyrir lífeyrissjóðina

Ásgeir Daníelsson
25.5. Samhliða því að lífeyrissjóðirnir hafa vaxið á síðustu 30 árum hefur þjóðhagslegur sparnaður minnkað. Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, telur hugsanlegt að tekjutrygging, sem er hluti lífeyriskerfisins hér á landi, geti skýrt minni sparnað heimilanna. Meira »

Landsbankinn að selja hlut sinn í Hampiðjunni

Hampiðjan
25.5. Landsbankinn hefur ákveðið að bjóða til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiðjunni eða sem nemur 10,93% af útgefnu hlutafé í félaginu. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir