FL Group fær að fara með virkan eignarhlut í TM
Fjármálaeftirlitið hefur í dag samþykkt umsókn FL Group til að fara með virkan eignarhlut í Tryggingamiðstöðinni (TM). FL Group hefur þar með heimild FME til að fara með meira en 50% eignarhluta í TM. FL Group á 99,1% hlutafjár í TM sem hefur tilheyrt samstæðureikningi FL Group frá og með fjórða ársfjórðungi 2007, að því er segir í tilkynningu frá FL Group.
Júlíus Þorfinnsson, forstöðumaður samskiptasviðs FL Group, segir að ánægja sé með það hjá FL Group að niðurstaða sé komin í umsókn félagsins um að fara með virkan eignarhlut í TM en það sé komið á níunda mánuð síðan umsóknin var lögð fram. Segir Júlíus að félagið hafi vænst þess að þetta gengi eftir en það hafi tekið tíma. Enda sé eðli og
ábyrgð svona mála mikil og því hafi FL Group ekki yfir neinu að kvarta heldur lýsi yfir ánægju með að þetta er komið í gegn. Segir hann að stjórnendur FL Group og TM vinni nú náið saman að áframhaldandi uppbyggingu TM.
Í tilkynningu frá Standard & Poor's á mánudag kemur fram að matsfyrirtækið hefur sett Tryggingamiðstöðina og dótturfélag þess, Nemi Forsikring ASA í Noregi, á athugunarlista sem gæti leitt til lækkunar á núverandi matseinkunn sem er BBB. Megin ástæða þess að matsfyrirtækið grípur til þessarar ráðstöfunar er skuldastaða FL Group.
Í tilkynningu Standard & Poor's kemur fram að óvissa varðandi getu FL Group til að standa við lánaskuldbindingar geti haft áhrif á fjárhagslegan styrk TM og Nemi. Standard & Poor's reiknar með ljúka athugun sinni fyrir lok júní eftir að búið er að fara yfir málið með stjórnendum FL Group og TM. Athugunin gæti leitt til þess að TM og Nemi yrðu lækkuð í matseinkunn um eitt eða fleiri þrep.
Að sögn Júlíusar hefur athugun S&P ekkert með fjárhagsstöðu TM að gera heldur séu þeir að vísa í áhyggjur sínar af skuldastöðu FL Group. Júlíus segir að FL Group sé í viðræðum við S&P um fjárhagsstöðu félagsins og samband FL Group og TM. Þetta muni síðan skila sér í niðurstöðu S&P hvað varðar lánshæfiseinkunn síðar í mánuðinum.
Júlíus segir að FL Group hafi bent á það að eigið fé FL Group sé á annað hundrað milljarðar og félagið hafi verið í mikilli endurskipulagningu hvað varðar eignasafn og fjárfestingastefnu. Þrátt fyrir mikið tap á fjórða ársfjórðungi síðasta árs og þeim fyrsta í ár þá hafi þessi endurskipulagning á félaginu þegar skilað sér í því að stjórnendur sjái töluverð batamerki á félaginu á öðrum ársfjórðungi.



















