Olíuverð hækkar á ný

Á olíumarkaðinum í New York.
Á olíumarkaðinum í New York. AP

Olíuverð hækkaði á ný í dag vegna lækkandi gengis Bandaríkjadals og ótta miðlara við að framboð anni ekki eftirspurn en nýjar tölur frá bandarískum stjórnvöldum benda til þess að eldsneytisbirgðir hafi minnkað meira í síðustu viku en sérfræðingar bjuggust við.

Tunna af hráolíu, sem afhent verður í júlí, seldist á 136,76 dali á markaði í New York og hækkaði um 5,45 dali. Þá hækkaði Brent Norðursjávarolía um 5,03 dali á markaði í Lundúnum og seldist á 136,05 dali tunnan.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK