Viðskipti
| 24 stundir
| 12.6.2008
| 5:30
| Uppfært
7:32
Makar látinna eigenda fá að eiga í Gift
Skiptanefnd Samvinnutrygginga ákvað á fundi sínum í gær að viðurkenna rétt eftirlifandi maka tryggingartaka til eignar í félaginu Gift ehf.; fjárfestingafélagi sem stofnað var utan um eignir og skuldir Samvinnutrygginga. Helstu eignir félagsins eru í fjárfestingafélaginu Exista og Kaupþingi, en þær nema milljörðum. „Skiptanefndin ákvað á fundi sínum í gær að túlka samþykktir félagsins rúmt sem þýðir að eftirlifandi makar fyrrverandi tryggingataka hjá Samvinnutryggingum eiga réttindi í félaginu,“ sagði Kristinn Hallgrímsson, formaður skiptanefndar, eftir fund hennar í gær. Samkvæmt samþykktum Samvinnutrygginga fellur réttur tryggingataka til eignar niður við andlát en skiptanefndin ákvað að túlka samþykktina þannig að maki látins tryggingataka fær 50 prósent af eignum hans í Gift.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















