Nýskráningum bifreiða fækkar um 41%
mbl.is
Nýskráningar bifreiða það sem af er júnímánuði voru 1.797 samkvæmt tölum frá Umferðarstofu. Þrátt fyrir að skráningar í júní séu nú fleiri en í maí er þetta sem stendur 41% fækkun á milli ára. Það sem af er þessu ári hafa 9.194 bifreiðar verið skráðar en fyrstu sex mánuði ársins í fyrra voru 11.382 bifreiðar skráðar. Skrá þyrfti 2.188 bifreiðar í þessari viku til að skráningar næðu sama fjölda og í fyrra, samkvæmt Vegvísi Landsbankans.
„Séu tölurnar árstíðaleiðréttar hafa nýskráningar það sem af er júní dregist saman um 40% frá júnímánuði í fyrra en krónan hefur veikst um 30% frá því í lok júní í fyrra. Fylgnin á milli gengisþróunar og nýskráninga er eins og gefur að skilja mjög mikil og hefur það sýnt sig undanfarið. Þó ber að hafa í huga að ein vika er eftir af júní og því ljóst að tólf mánaða samdráttur í skráningum verði minni en 40% en viðsnúningurinn er samt sem áður töluverður.
Séu nýskráningar á
2. ársfjórðungi þessa árs bornar saman við sama tímabil í fyrra kemur í
ljós tæplega 40% samdráttur. Þetta er töluvert önnur þróun en á 1.
fjórðungi en þá var um 14% aukning í nýskráningum á milli ára," að því er segir í Vegvísi Landsbankans.



















