Kaupþing með útboð á skuldabréfum

Kaupþing
Kaupþing

Kaupþing hefur ákveðið að bjóða út sérvarin skuldabréf (lánshæfismat Aaa:Moody's) til fagfjárfesta vegna fjármögnunar á nýjum íbúðalánum. Bréfin eru til 25 og 40 ára, verðtryggð með föstum vöxtum út lánstímann og skráð á OMX Nordic Exchange.

Útboð á þessum bréfum verður að lágmarki einu sinni á hverjum ársfjórðungi. Kjör á nýjum íbúðalánum ráðast af niðurstöðu útboðsins, en íbúðalán bankans verða með 0,9% álagi. Markmið bankans með þessu fyrirkomulagi er að auka gegnsæi í vaxtamyndun á íbúðalánamarkaði, að því er segir í tilkynningu frá Kaupþingi.

Útboðið verður með áskriftarfyrirkomulagi (e.book-building) og stendur til klukkan 16:00 föstudaginn 27. júní.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK