Viðskipti
| AP
| 25.6.2008
| 10:55
Olía hækkar í verði á markaði í New York
Olíuborpallur Statoil á Sleipnissvæðinu í Norðursjó. mbl.is/statoil
Verð á hráolíu til afhendingar í ágúst hækkaði um 37 sent tunnan í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í New York í dag og er tunnan nú á 137,37 dali. Verð á Brent Norðursjávarolíu hefur hins vegar lækkað um 6 sent á markaði í Lundúnum og er nú 136,40 dalir tunnan.
Í skýrslu sem birt var í gær í Bandaríkjunum kemur fram að eftirspurn eftir bensíni hafi dregist saman um 2,7% í síðustu viku samanborið við sama tímabil í fyrra. Virðist allt benda til þess að Bandaríkjamenn hafi dregið verulega úr eldsneytisnotkun að undanförnu í kjölfar hækkunar á bensínverði. Hins vegar bendir ekkert til þess að ríki eins og Kína hafi dregið úr notkuninni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















